Upphaf sögunnar um Kalla og Gústu
INNGANGUR
Ertu ekki að plata? Viltu í raun og veru vita hvað gerðist í sumar?
Allt í lagi, ég skal þá segja þér hvað gerðist. Það var nú dálítið stórkostlegt!
Við vorum í sveitinni. Þar var mikið af dýrum en samt var hvalurinn aðalpersóna þessa sumars, Bjargvætturinn.
Vitið þið eitthvað að ráði um hvali? Ekki vissi ég mikið um þá. Ég hafði eiginlega aldrei hugsað um hvali áður en ég upplifði þetta sumar!
Við fórum í draugakofann sem stendur úti í hrauni!
Verðið þið ekki hrædd þegar þið hugsið um draugakofa? Ég var það þangað til við fórum í draugakofann um miðja nótt!
Hvað fleira gerðist nú þetta sumar? Ég verð að rifja það upp!
Hvort ég man! Við Gústa urðum vinir!
Bíðið við, Gústa vill komast að!
Kalli, þú sagðir ekki frá því hvernig við ætlum að skiptast á um að segja söguna okkar. Fyrst segir þú frá í smástund og síðan ég.
Ég ætla að segja frá því hvernig ég hermi eftir kettinum hans Kalla, honum Láka. Ég ætla líka að segja frá því þegar ég þykist vera köttur, fiskur eða fugl! Hafið þið nokkru sinni ímyndað ykkur hvernig það væri að vera rjúpa?
Ég kemst ekki hjá því að ímynda mér hvernig það væri að vera Bjargvættur. Né heldur hvernig það væri að vera afi hans Kalla.
Ég ímynda mér líka hvernig það væri ef ég skildi allt. Ég veit að mér myndi ekki þykja það gaman. Það yrði ekkert eftir til að velta fyrir sér.