DV 19.12.1988

„Lærum margt sem fullorðnir vita ekki"

Heimspekinámskeið fyrir börn! Hljómar undarlega,jafnvel fáránlega með tilliti til þess að í hugum flestra táknar heimspeki eitthvað sem bara miklir spekingar og sérvitringar fást við. Að minnsta kosti finnst fólki heimspeki vera eitthvað sem er ekki á allra færi að skilja. síst barna.

En það er nú öðru nær. Börn eru heimspekingar í eðli sínu og þau geta kennt fullorðnum mikið á því sviði. Hugur þeirra er opinn og einlægur og þau geta tekist á að vangaveltur um lífið og tilveruna á ferskan hátt.

Heimspekinámskeið fyrir börn heyrir til nýjunga hér á landi en fyrsta sérhannaða heimspekiefnið fyrir börn kom út í Bandaríkjunum árið 1974. Maður að nafni Matthew Lipman byrjaði þá að semja sögur fyrir börn, sérstaklega ætlaðar til æfinga í rökleikni og í siðfræðilegri og þekkingarfræðilegri umræðu.

Blaðamaður sat tíma í heimspeki fyrir börn og hófst hann á því að börnin, öll á aldrinum 10-11 ára, lásu saman sögu úr bók eftir Lipmann sem Hreinn Pálsson, kennari þeirra, hefur þýtt. Eftir lesturinn gátu krakkarnir bent á punkta sem þeim þóttu athyglisverðir og Hreinn lagði líka fyrir þau spurningar er tengdust sögunni beint eða óbeint. Umræðurnar spunnust áfram og greinilegt var að krakkarnir voru komnir í góða þjálfun, bæði við að tjá sig og hlusta hvert á annað. Út úr samræðunum kom yfirleitt sameiginleg niðurstaða hópsins að vel ígrunduðu máli.

 

Læri að hugsa öðruvísi

„Ég byrjaði á námskeiðinu í haust og mér finnst mjög gaman. Hérna lærir maður um merkingu orðanna og að sum orð geta þýtt margt. Það er gaman að fá að tala og skemmtilegast að tala um hlutina sem við erum að lesa. Sumar sögurnar eru þannig að maður finnur stundum ekkert og stundum alveg heilmikið. Mér finnst ég læra að hugsa öðruvísi," sagði Þórunn Sigurðardóttir sem er 11 ára.

Krakkarnir voru allir sammála um að námskeiðið væri mjög gagnlegt og skemmtilegt og að kennarinn þeirra. Hreinn Pálsson, væri alveg einstakur. Þeim fannst spurningarnar, sem hann leggur fyrir þau, skemmtilegar þótt það væri stundum erfitt að hugsa svona öðruvísi. Þau vildu gjarnan hafa svona tíma í skólanum en gátu samt ekki alveg ímyndað sér hvernig það væri hægt.

„Við lærum margt sem fullorðnir vita ekki," sagði Eygló Benediktsdóttir en hún sagði að sér hefði ekkert litist á þegar mamma hennar var búin að innrita hana á eitthvert „heimspekinámskeið" sem henni fannst vera svo asnalegt og hlægilegt orð, Hún hélt að það væri speki um alheiminn og stjörnurnar en komstsvo að öðru.

„Margir krakkar vita ekkert hvað þetta er og segja bara að þetta sé leiðinlegt án þess að vita neitt. En svo er heimspeki bara mjög skemmtileg, líka fyrir krakka. Mamma segir að ég tali miklu skýrar og betur en áður og ég er fegin að ég fór á námskeiðið."

-Ade